13.06.2011 21:26:42 / 3fl
Það
er mæting kl. 16.30 norðan við íþróttahúsið.
Þaðan verður farið í
Hofsós og þar klæðum við okkur og tökum stuttan klefafund. áður en við
förum út á völl og vinnum Þórsarana.
Hópurinn á morgun: Bryndís Rut,
Elín, Fanney, Salóme, Vava, María, Helga, Bríet, Ólína, Hildur, Bryndís
Rún, Hugrún Líf, Sigurveig, Eva, Jóna María, Aníta.
Kv. Gaui
»
08.06.2011 22:51:20 / 3fl
Það er mæting kl. 17.00 í leikinn á morgun. Eftirfarandi eru í hópnum á morgun:
Bryndís
Rún, Hugrún Líf, Elín, Hildur, Helga, María, Sigurveig, Ólína, Jóna
María, Snæborg, Eva Margrét, Bryndís Rut, Salóme, Fanney, Vava, Anna
Lilja.
Kv. Gaui
»
28.05.2011 21:42:57 / 3fl
Nú er komið að þessu lúxus vandamáli sem ég þarf að kljást við það er að velja í lið. Hópurinn er mjög jafn og erfitt að velja hópinn og byrjunarlið. Ég bið alla um að virða val mitt í sumar fyrir leiki.
Ég velti þessum hlutum vel og lengi fyrir mér í hvert skipti en að sjálfsögðu eru skiptar skoðanir á þessu.
Að sjálfsögðu geta þær sem ekki eru í hóp núna unnið sér sæti í hóp sem og byrjunarliði með því að standa sig vel á æfingum og það er leiðin til þess að takast á við þetta. Þetta á einnig við um þær sem eru ekki í byrjunarliði og eru ósáttar við það. Það á engin að vera sáttur við að spila ekki en spurningin er hvort viðbrögðin við því eru rétt. Það er mitt hlutverk sem þjálfara og kennara að benda ykkur á og kenna ykkur rétt viðbrögð. Að fara í fýlu og draga stemmninguna sem liðið þarf að ná til þess að standa sig í hverjum leik er ekki rétt leið. Að taka hlutunum eins og þeir eru eins og hverju öðru hundsbiti og standa sig svo þegar tækifærið kemur er rétta leiðin.
Það sem ég er að reyna að segja er að viðbrögð einstaklinga í liðinu getur bitnað á frammistöðu liðsins á meðan þau ættu að bæta liðið.
Með þessum orðum er ég ekki að reyna að afsaka val mitt núna en af því að yngra árið kemur ekki á æfinguna á sunnudaginn þá fannst mér ég verða að segja þetta hér.
En hópurinn á mánudaginn verður skipaður eftirfarandi leikmönnum:
Bryndís Rut
Bryndís Rún
Vigdís
Bríet
Helga
Eva
Elín
Fanney
Salóme
Vava
Ingibjörg
Hugrún
Helga
Hildur
Ólína
Sigurveig
Eldra ár sjáumst kl. 17.30 á morgun á nöfunum.
Yngra ár: góða skemmtun í skólaferðalaginu.
Kv. Gaui
»
20.05.2011 12:39:10 / 3fl
Æfingarnar í dag og á morgun falla niður

vegna veikinda hjá mér. Næsta æfing samkvæmt ykkar plani á sunnudag kl. 17.00 á nöfunum.
Kv. Gaui
»
13.05.2011 20:38:04 / 3fl
Vegna lítillar skráningar hef ég látið Bjarka fá leikinn á sunnudaginn. Ég vil hins vegar að þær sem eru skráðar fari í leikinn og ég ætla að koma með og fylgjast með. En hinar á eldra ári sem ekki koma, góða ferð út og gangi ykkur vel þar. Yngra árið mæta galvaskar á æfingu á mánudaginn kl. 17.30 á nöfunum.
Kv. Gaui
»
12.05.2011 22:41:41 / 3fl
Jæja þá er leiktíminn kominn á hreint. Leikurinn verður á móti Þór kl. 11.00 á sunnudaginn. Þær sem hafa áhuga á að taka þátt í síðasta leik fyrir íslandsmót skrá sig hér. Lagt verður af stað frá íþróttahúsinu kl. 09.00.
Moni getur keyrt og við reiknum með því að hann fari. Við borgum bara í rútuna.
Kv. Gaui
»
05.05.2011 23:28:54 / 3fl

úps ég var búin að steingleyma að ég er að kenna á sundnámskeiði hjá 1. - 3. bekk á morgun frá kl.13 - 16. Æfingin fellur því niður á morgun. Ég mæli samt með því að þið hittist á nöfunum og skiptið í tvo lið og spilið. Ég er með vesti í bílnum hjá mér (verð í sundlauginni kl. 14.00 á morgun)
Sorry sorry

Kv. Gaui
»
04.05.2011 23:36:59 / 3fl
Hæ hæ
Á morgun eigið þið að fara á hlaupabrautina og:
Skokka 4 hringi
50 kviðæfingar, 40 bakæfingar og 20 armbeygjur
hlaupa 6 x 100 metra á 80 - 90% hraða ganga til baka.
50 kviðæfingar, 40 bakæfingar og 20 armbeygjur
hlaupa 6 x 50 metra og ná 100% hraða í lokin ganga til baka.
50 kviðæfingar, 40 bakæfingar,20 armbeygjur, 100 áfram/aftur á bak hopp yfir hvíta línu og 100 hliðarhopp yfir hvíta línu.
Skokka rólega 2 hringi
Teygja.
kommenta hér þegar þið eruð búnar og lýsa æfingunni í einu orði.
Kveðja Gaui
»
02.05.2011 09:40:32 / 3fl
Sú breyting hefur orðið nú að við hættum að fara í reiðhöllina á mánudögum.

Í dag mætum við allar saman kl. 17.30 á gervigrasið með hlaupaskóna. Við byrjum á hlaupi og svo verður fótbolti í klukkutíma. Vonandi verður næsta mánudagsæfing svo á skallaflötinni á nöfunum. En það er ekki orðið ljóst ennþá.
Kv. Gaui
»
15.04.2011 14:34:31 / 3fl
Nú liggur þetta algjörlega fyrir. Við förum með 15 manna hóp og það eru komnir bílar fyrir allar. Ég set dæmið hér upp bara til viðmiðunar að sjálfsögðu raðast í bílana eins og ykkur sýnist:
Bryndís Rut
Snæborg
Ólína
Eva
Helga
Ingibjörg
Bríet
Fanney
Rakel
Anita
Sigurveig
Bryndís Rún
Vava
Elín
Hugrún Líf
Samtals 15 stelpur. Ég vill áminna að tíminn er frá 13 -14 og því lít ég á þetta frekar sem sameiginlega æfingu með KA en samt á stórum velli. Og að sjálfsögðu við að spila gegn þeim á æfingunni.
Bílarnir eru fimm sem komnir eru. Ég reikna dæmið svona:
Mamma Evu: Eva + 2 = 3
Pabbi Ingibjargar: Ingibjörg + 3 = 4
Ég Ég + 1 = 1
Mamma Elínar Elín + 3 = 4
Pabbi Rakelar Rakel + 2 = 3
Bensín peningur er áfram 2000 kr. sem hver greiðir sínum bílstjóra.
Ákveðið var á æfingu í gær að hittast kl 10.45 við íþróttahúsið og raða sér í bílana. Það þarf að muna eftir Bryndísi í Brautarholti.
Bíllinn frá Hofsósi þarf þá ekki að taka neina á króknum.
Ég verð farinn fyrr vegna fjárútláta á Akureyri og ég tek Sigurveigu með mér.
Það er mæting í Bogann kl. 12.30
Kv. Gaui
»
12.04.2011 19:43:10 / 3fl
Jæja nú er skammt stórra högga á milli.
Okkur hefur verið boðið í Bogann aftur um næstu helgi. Nú á laugardaginn í leik gegn KA. Miðað við gengi okkar í síðustu tveimur leikjum veitir okkur ekkert af því að fara og spila á stórum velli. Leikurinn hefst kl. 13.00.
Nú þarf ég að fá að vita hverjar gefa kost á sér í þennan leik. Svo væri líka gott að vita ef einhverjr foreldrar gætu keyrt annars verð ég að treysta á Mona aftur.
Kv. Gaui
»
09.04.2011 11:13:13 / 3fl
Nú er allt á hreinu. Leikurinn hefst kl. 11.00. Spilað er gegn 3.fl.Þórs Akureyri. Það verður blanda úr liði 1 og 2 hjá þeim. Örugglega sterkt lið en samt lið sem við eigum að geta unnið með góðum leik. Munið því að borða kjarngóðan morgunverð og ekki fara mjög seint að sofa. En þær sem eru búnar að skrá sig eru:
Hildur
María
Elín
Bryndís Rut
Aníta
Salóme
Fanney
Rakel
Ólína
Eva
Bríet
Hugrún Líf
Vigdís
Bryndís Rún
Snæborg
Enn eru sæti laus í bílnum hjá Mona þannig að ef einhver hefur gleymt að skrá sig og langar að koma með þá er það hægt.
Moni ætlar að vera góður við okkur og rukka það sama og síðast þrátt fyrir að Olían hafi hækkað mikið og við náum ekki að fylla bílinn þannig að gjaldið í rútuna er 2000. kr.
P.s. Ef þíð eruð með búninga í eigu félagsins þá meigið þið koma með þá.
Kv. Gaui
»
06.04.2011 23:11:04 / 3fl
Viljið þið vinsamlegast skrá ykkur hér þið sem gefið kost á ykkur í leik á sunnudaginn við 3.flokk Þórs á Akureyri. Leikurinn byrjar kl. 11.00. Lagt verður af stað kl. 8.30. Einnig þarf ég að fá að vita þetta venjulega með farið. Ég reikna með að Moni geti keyrt og ég bóka hann ef við fyllum bílinn hjá honum. Ef rosalega margar skrá sig þá áskil ég mér rétt til þess að velja í hópinn.
En að sjálfsögðu verður æfing á föstudaginn.
Kv. Gaui
»
28.03.2011 08:30:50 / 3fl
Æfingin í dag hjá yngra árinu verður kl. 16.30 en ekki klukkan 17 eins og áður. Vinsamlegast mætið tímanlega og verið tilbúnar kl. 16.30 því þetta er fyrri prófæfingin mín.
Kv. Gaui
»
04.03.2011 10:17:54 / 3fl
Nú er komin föstudagur og 14 búnar að skrá sig í leikinn. Þar sem ég bað ykkur um að skrá ykkur fyrir föstudag þá reikna ég ekki með fleirum í leikinn. Ef hins vegar að einhverjar hafi gleymt sér eins og svo oft gerist hjá sumum þá held ég tveimur sætum opnum fyrir þær sem skrá sig fyrstar.
En hópurinn lítur svona út:
Bryndís Rut
Elín
María
Hugrún Líf
Salóme
Eva
Inga
Bríet
Vigdís
Ólína
Hildur
Anita
Rakel
Jóna María.
Anna Lilja
Fanney
Moni er til í að fara fyrir okkur og tekur þá 2000 kr. á mann. Best væri ef flestar færu þá með honum því það er ákveðin kostnaður sem fylgir því að fara á rútu og verðið er miðað við fjöldann í hópnum. Ef að margar ætla sér ekki að fara með Mona þá gæti gjaldið hækkað á þær sem eftir sitja.
Það er mæting í íþróttahúsið kl. 13.00 þar sem ég kynni töflufundinn sem við förum svo aftur yfir í klefanum fyrir leikinn. Þið munið að það er verið að taka mig út í þessum leik og því verða nokkrir gestir á töflufundinum.
Kv. Gaui
»
Síður:
1 2 3 ...
24